Retatrutide

Reta – mikilvægt að vita

Reta getur minnkað matarlystina mjög mikið. Þess vegna skiptir miklu að passa vel upp á næringu, vökva og hreyfingu.

Matur

Ekki hætta að borða þótt hungrið minnki. Passaðu að fá nóg af:

  • Próteini
  • Næringarríkum mat
  • Vatni
  • Steinefnum

Borðaðu frekar minni máltíðir og hættu þegar þú ert orðinn saddur. Mjög stórar, feitar eða djúpsteiktar máltíðir geta gert ógleði og magaóþægindi verri hjá sumum. Forðastu líka ofát, sérstaklega ef meltingin er hægari eða matarlystin mjög lítil.

Vökvi og steinefni

Drekktu vel yfir daginn. Ef þú borðar minna, svitnar mikið, æfir mikið eða færð niðurgang eða uppköst skiptir sérstaklega miklu að passa upp á vökva og steinefni.

Prótein og vöðvamassi

Þegar fólk léttist getur hluti þyngdartapsins verið vöðvamassi. Þess vegna er mikilvægt að:

  • Borða nóg prótein
  • Halda áfram að hreyfa sig
  • Halda styrktaræfingum inni
  • Fara ekki í óþarflega mikla kaloríuskerðingu

Þungar styrktaræfingar, CrossFit eða sambærileg hreyfing, ásamt nægu próteini, hjálpa til við að halda í vöðvamassann á meðan þú léttist.

Algengar aukaverkanir

Algengustu aukaverkanirnar eru:

  • Ógleði
  • Niðurgangur
  • Hægðatregða
  • Uppköst
  • Minnkuð matarlyst

Ef maginn er slæmur hjálpar oft að borða minna í einu, borða hægar og sleppa mjög stórum, feitum og djúpsteiktum máltíðum.

Leitaðu til læknis ef eitthvað er verulega óeðlilegt

Til dæmis:

  • Miklir eða viðvarandi kviðverkir
  • Endurtekin uppköst eða þú heldur ekki niðri vökva
  • Mikill svimi eða yfirlið
  • Alvarleg ofnæmisviðbrögð
  • Einkenni sem eru sterk eða versna hratt

Mín persónulega reynsla

Ég hef fengið ógleði þegar ég var að borða mjög óhollt, borða mikið og hreyfa mig lítið.

Þegar ég passa að borða hollt, drekka vel, fá nóg prótein og steinefni og halda áfram að æfa finn ég persónulega ekkert fyrir aukaverkunum.

Allir eru samt ólíkir og það sem virkar vel fyrir mig þarf ekki að virka eins fyrir aðra.

Um Retatrutide →

Spurningar?

Við svörum á WhatsApp, oftast samdægurs. COA fyrir hverja lotu er sent á beiðni.

+354 766 8575